Jólin kvödd með stæl á þrettándanum

Jólasveinar og ýmsar kynjaverur munu láta sjá sig á Þrettándagleðinni.
Jólasveinar og ýmsar kynjaverur munu láta sjá sig á Þrettándagleðinni.

Hin árlega Þrettándagleði Þórs og Akureyrarstofu verður haldin laugardaginn 6. janúar á planinu við Hamar og hefjast hátíðarhöldin klukkan 18:00. Jólasveinar mun láta sjá sig og kveðja jólin. Álfakóngur mætir á einnig með drottningu sinni og flytur ávarp.

Þá er von á því að tröll, púkar og alls kyns kynjaverur verði á staðnum. Gengið verður fylktu liði frá Glerárskóla að Hamri klukkan 17:50 og er fólk hvatt til þess að taka þátt í skrúðgöngunni. Einnig er fólki bent á að nota bílastæði við Glerárskóla og verslunarmiðstöðina í Sunnuhlíð þar sem engin bílastæði verða til staðar á planinu við Hamar vegna skemmtuninnar. Eldar munu loga í kerjum á svæðinu.

Veitingasala verður í Hamri meðan á skemmtuninni stendur og verður boðið upp á heitt kakó, kaffi og kleinur og soðið brauð.

„Eins og undanfarin ár er bæjarbúum boðið á þennan viðburð og engin aðgangseyrir. Fjölmennum og keðjum jólin með stæl,“ segir á heimasíðu Þórs.

Nýjast