20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
,,Bráðum kemur ekki betri tíð, því betri getur tíðin ekki orðið”
Það er mun oftar sem sagðar eru fréttir af ófærð og allskonar veseni veðri tengdu á þessum árstíma. Staðan er hinsvegar sú núna að það er óhætt að vitna í Stuðmenn og segja ,,Bráðum kemur ekki betri tíð, þvi betri getur tíðin ekki orðið”
Hitatölur hér norðan heiða í kvöld eru mun líkari þvi sem við látum okkur dreyma um á sólbjörtum sumardegi, ekkert í likindum við, segjum venjulegt nóvemberkvöld.
Það eiginlega ástæða til þess að hvetja alla sem tök hafa á þvi að fara út, þó ekki væri nema bara með ruslið og njóta um leið að hafa verið úti við að kvöldi 11-11 2024 þegar hitastigið var nærri 20 stigum.
Framundan er samkvæmt veðurspá venjulegt nóvmemberveður, frost og snjókoma svo nú er lag að njóta, út gott fólk!