Stjórn Cruise Iceland ályktar vegna afnáms tollfrelsis á hringsiglingar 1. janúar 2025

Blikur eru á lofti varðandi áframhaldandi siglingar svokallaðra leiðangurskipa komi til þess að toll…
Blikur eru á lofti varðandi áframhaldandi siglingar svokallaðra leiðangurskipa komi til þess að tollfrelsi þeirra verði afnumið

Eins og lesendur eflaust muna sagði Vikublaðið frá því  á dögunum að fyrirhugað afnám á tollafrelsi sem svokölluð leiðangursskip hafa notið hér við land gæti haft  afar neikvæðar afleiðingar fyrir landsbyggðina.  

.  Jóhanna Tryggvadóttir verkefna-og markaðsstjóri Hafnasamlags Norðurlands sagði þá m.a. í viðtalið við blaðið ,,Það er augljóst eins og málið horfir við okkur að þetta verður skaði fyrir landsbyggðina, sérstaklega minni staði þar sem skipin skipta miklu máli fyrir samfélagið.“

Stjórn  Cruise Iceland  sendi svo frá sér ályktun um málið í morgun þar sem lýst er miklum áhyggjum af stöðu mála.

,, Ályktun stjórnar Cruise Iceland vegna afnáms tollfrelsis á hringsiglingar 1. janúar 2025

Cruise Iceland og aðildarfyrirtæki hafa lýst yfir verulegum áhyggjum af ákvörðun stjórnvalda um að afnema tollfrelsi skemmtiferðaskipa á hringsiglingum sem taka á gildi 1. janúar nk. Ákvörðuninni hafði verið frestað um eitt ár vegna viðvarana frá Cruise Iceland og annarra hagaðila en nefndarálit meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar mælti fyrir um frestun afnámsins. Í álitinu um gildistöku ákvæðisins, í lögum nr. 88/2005, þar sem 2. málsliður b-liðar 1. töluliðs 1. málsgreinar 6. greinar laganna var felldur brott, var því beint til stjórnvalda að taka málið aftur til skoðunar í samráði við hagsmunaaðila og að brýnt væri að meta fjárhagslegar afleiðingar afnáms tollfrelsisins. Þetta hefur enn ekki verið gert og nú eru aðeins þrír mánuðir þangað til tollfrelsið verður afnumið með ómældum skaða fyrir íslenska ferðaþjónustu og tengda hagaðila.

Stjórn Cruise Iceland hefur því samþykkt eftirfarandi ályktun:
Það er á forræði stjórnvalda að leggja mat á íþyngjandi efnahagsleg áhrif fyrir íslenskt atvinnulíf og ábyrgð kjörinna fulltrúa er mikil ef ákvörðunin leiðir til höggs á íslenska ferðaþjónustu og ekki síst ef brothættar byggðir verða verst úti eins og útlit er fyrir en þær njóta heimsókna skipafélaga á hringsiglingu sérstaklega.

Þar sem stjórnvöld hafa ekki enn lagt mat á tjónið af aðgerðinni hvetur Cruise Iceland til þess að afnámi tollfrelsisins verði frestað um tvö ár á meðan lagt er fullt mat á hagræn áhrif þess.

Hér fyrir neðan má sjá mjög varlega áætlaðar tekjur af hringsiglingum sem stefnt er í voða með ákvörðun stjórnvalda.  

Samtals beinar tekjur af hafnargjöldum, áætlaðri eyðslu ferðamanna, opinberum gjöldum, olíusölu, flugfargjöldum og þjónustu vegna hringsiglinga á Íslandi: Kr.   10.785.174.406

Aðildarfélagar Cruise Iceland eru eftirfarandi: Hafnir á Akranesi, Akureyri, Djúpavogi, Eskifirði, Neskaupsstað, Grímsey, Grundarfirði, Hafnarfirði, Hrísey, Húsavík, Höfn, Ísafirði, Raufarhöfn, Reykjanesi, Reykjavík, Sauðárkróki, Hofsós, Seyðisfirði, Borgarfirði eystra, Siglufirði, Skagaströnd, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum, Vesturbyggð og Þorlákshöfn.

Þjónustufyrirtækin Samskip, Gára, Atlantik, Iceland Travel, Nonni Travel, Arctic Adventures,  Ekran, Norðurflug, Vesturferðir, Skeljungur og SDK group.

 

 

 

Nýjast