Starf mitt sem geðhjúkrunarfræðingur

Snæbjörn Ómar Guðjónsson
Snæbjörn Ómar Guðjónsson

Í tilefni af nýstofnuðu félagi hjúkrunarfræðinga í Eyjafirði mun Vikudagur á næstu vikum og mánuðum birta greinar eftir hjúkrunarfræðinga á Akureyri nágrenni þar sem þeir kynna sín störf. Í þessari viku er það Snæbjörn Ómar Guðjónsson sem skrifar.

Ég heiti Snæbjörn Ómar Guðjónsson og útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri árið 2004. Ég lauk diplómanámi í geðhjúkrun frá Háskóla Íslands 2006 og meistaranámi í heilbrigðisvísindum með áherslu á langvinna sjúkdóma frá Háskólanum á Akureyri 2015. Samhliða námi í framhaldsskóla starfaði ég hjá fyrirtæki í Reykjavík sem heitir Ísteka og var á þeim tíma lítil eining innan Lyfjaverslunar Íslands. Ég vann við lyfjaframleiðslu og fékk að kynnast nákvæmum vinnubrögðum vísindamanna.

Það var mjög spennandi og lærdómsríkt að kynnast störfum í hágæða líftækniiðnaði en ég var harðákveðinn í að mennta mig á þessu sviði. Árið 2000 eða ári áður en ég ætlaði mér að flytja til Reykjavíkur til að mennta mig í lífefnafræði/líffræði skráði ég mig í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri þar sem ég taldi það góðan undirbúning fyrir komandi nám, að taka fyrsta árið eða að minnsta kosti fyrstu önnina. Ég áleit að áfangar eins og líffærafræði, efnafræði og vefja- og frumulíffræði myndu gagnast mér í áformum mínum. Það fór svo að námið var mjög áhugavert og lærdómsríkt og því ákvað ég að ljúka því. Ég var líka búinn að átta mig á því á þessum tíma að það hentaði ágætlega að vinna náið með fólki og á tímabili var ég spenntur fyrir því að læra sálfræði.

Samhliða háskólanámi og allt til ársins 2011 starfaði ég í apóteki á ýmsum tímabilum og með hléum, þar kynntist ég líka mikilvægi nákvæmra vinnubragða. Á þriðja ári í hjúkrunarnáminu fór ég í verknám á legudeild geðdeildar á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) og mér fannst meðferðarstarfið mjög áhugavert og ákvað því að sækja um starf. Eftir sumarstarf á þriðja ári vissi ég nákvæmlega hvað ég myndi vilja leggja fyrir mig, mér fannst áhugasvið mitt kristallast í geðhjúkrun. Ég hef starfað á deildinni frá árinu 2003 og er mjög ánægður í starfi mínu. Ég hef kynnst mörgu frábæru samstarfsfólki í gegnum tíðina sem hefur reynst mér vel til að þróa mig sem meðferðaraðila en sjúklingar sem hafa þegið meðferð á deildinni hafa kennt mér mest af öllu.

Í starfi mínu sem meðferðaraðili felst mikil áskorun þar sem í mörgum tilvikum er ég ásamt samstarfsfólki mínu að vinna með sjúklingum sem eru að fást við tímabil sem oft á tíðum eru mögulega erfiðustu stundir í lífi þeirra. Það er gríðarlega mikilvægt að leggja mikið á sig og sinna starfi sínu af kostgæfni. Ég upplifi starfið mitt mjög mikilvægt og finn til mikillar ábyrgðar þar sem við erum að fást við sjúkdóma sem eru oft á tíðum lífshættulegir. Það er mjög gefandi í starfi mínu að taka þátt í því og upplifa þegar sjúklingar öðlast betri líðan í baráttu sinni við erfiðar aðstæður.

Ég hef einblínt á að sérhæfa mig í geðhjúkrun frá því ég lauk diplómanáminu en það nám reyndist mér góður vegvísir sem meðferðaraðili og lagði línur fyrir meistaranámið. Samhliða því að sinna almennu meðferðarstarfi sem geðhjúkrunarfræðingur hef ég undanfarin ár meðal annars sinnt starfi gæðavarðar á geðdeild og tekið þátt með öflugum hópi innan SAk, að takast á við það metnaðarfulla verkefni að gera SAk alþjóðlega vottað sjúkrahús. Einnig hef ég verið í áfallateymi SAk, verið í verkefnahópi um innleiðingu fjölskylduhjúkrunar á SAk, sinnt stundakennslu í heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri, verið í rannsóknarsamtarfi við aðila innan Háskólans á Akureyri, Landspítala Háskólasjúkrahúss og Háskóla Íslands og fengið þannig tækifæri til að kynnast nákvæmum vinnubrögðum háskólasamfélagsins.

Ég tel einn af mikilvægustu þáttum í almennri hjúkrun vera sá að veita fjölskyldum sjúklinga stuðning á erfiðum tíma í lífi fólks, undanfarin tæp tvö ár hef ég unnið að innleiðingu Calgary fjölskylduhjúkrunar á SAk með frábærum hópi hjúkrunarfræðinga. Það verður eitt af mínum forgangsverkefnum næstu árin í starfi mínu á SAk ásamt því að vinna áfram með samstarfsfólki mínu að þróun faglegrar geðhjúkrunar á Íslandi.

Ég vonast til þess og sé sjálfan mig í sama starfi á legudeild geðdeildar SAk næstu 20 árin enda finnst mér starfið mitt vera áhugavert en það getur á mörgum stundum verið mjög krefjandi. Það er mikil áskorun en jafnframt gefandi að vera í nánum samskiptum við fólk, hvort sem um er að ræða sjúklinga, aðstandendur þeirra eða samstarfsfólkið sem starfar á SAk.

Nýjast