Sextán rafeindavirkjar

Alls luku sextán nemar sveinsprófi í rafeindavirkjun frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Mynd vefsíða…
Alls luku sextán nemar sveinsprófi í rafeindavirkjun frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Mynd vefsíða VMA

Sextán nemendur þreyttu sveinspróf í rafeindavirkjun frá Verkmenntaskólanum á Akureyri í liðinni viku. Sá nemendahópur sem nú er að ljúka námi sínu í rafeindavirkjun brautskráist frá VMA á fimmtudag.

 Nemendur tóku próf í fjarskiptatækni, fagteikningu, nettækni og miðlun, rafeindabúnaði og mælingum, stafrænni tækni og sjálfvirkni og rafeindavélfræði.

Fimm manna sveinsprófsnefnd var í VMA af þessu tilefni og lagði mat á verkefni og úrlausnir nemenda, bæði bóklegar og verklegar. Haldin voru þrjú bókleg próf og eitt verklegt teiknipróf. En stærst var smíðaverkefni sem nemendur unnu  að alla önnina. Um verkefnin skiluðu nemendur skýrslum og gerðu sveinsprófsnefnd grein fyrir þeim.

Nám í rafeindavirkjun í VMA er þrjár annir, að undangengnu fjögurra anna námi í grunndeild rafiðna. Nemendur hefja nám að hausti og ljúka því með brautskráningu í lok haustannar.. Nýr námshópur í rafeindavirkjun verður síðan tekinn inn næsta haust segir á vefsíðu VMA.

Nýjast