Óvissu um kjarasamninga eytt að mestu

Húsavík. Mynd/Húsavíkurstofa
Húsavík. Mynd/Húsavíkurstofa

Sveitarstjórn Norðurþings tók ársreikning Norðurþings og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2023 til fyrri umræðu á fundi sínum þann 4. apríl 2024.

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og fer síðari umræða fram þann 2. maí nk.

Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings

Í tilkynningu frá Norðurþingi kemur fram að rekstur samstæðunnar hafi gegnið vel og nokkru betur en gert hafði verið ráð fyrir. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 6.508 milljón króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 6.004 milljónum króna.

Rekstrartekjur A hluta námu 5.284 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 4.709 milljónum króna.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var jákvæð um 195 milljónir króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 192 milljóna króna neikvæðri rekstrarniðurstöðu.

Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 190 milljónir króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 133 milljónir króna. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.511 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af var eigið fé A hluta um 1.743 milljónir króna.

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 3.594 milljónum króna en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu nam 317 stöðugildum.

Íbúafjöldi Norðurþings í árslok 2023 var 3.200 og fjölgað um 45 frá fyrra ári.

Skuldahlutfall samstæðu samkvæmt núgildandi reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 67% árið 2022 niður í 65% í árslok 2023. 

Í framsögu Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra kom m.a. fram að í heild skilar Norðurþing góðum ársreikningi en reksturinn er krefjandi. Óvissu um kjarasamninga verið eytt að mestu en framundan er endurskoðun á gjaldskrám sveitarfélagsins sem snúa að barnafjölskyldum og fólki í viðkvæmri stöðu.

Nýjast