20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Framsýn og Þingiðn kaupa tvær orlofsíbúðir á Húsavík
Stéttarfélögin Framsýn og Þingiðn hafa gengið frá kaupum á tveimur orlofsíbúðum sem eru í byggingu í Hraunholti á Húsavík.
Með kaupunum vilja félögin auka enn frekar þjónustu við félagsmenn sem starfa víða um land en um 60% félagsmanna Framsýnar búa utan Húsavíkur eða tæplega 2.000 félagsmenn af 3.500. Þá eru félagsmenn Þingiðnar einnig dreifir um landið. Ákvörðunin um kaupin var tekin á sameiginlegum félagsfundi stéttarfélaganna í lok nóvember á liðnu ári.
Um er að ræða 118 m2. íbúðir með geymslu. Íbúðirnar verða full frágengnar með lóð og upphituðu bílastæði. Verðmatið per íbúð er 69.350.000,-. Áætlað er að íbúðirnar verði klárar 1. ágúst 2024.
Jafnframt er til skoðunar að nota íbúðirnar í skiptum yfir sumarið fyrir orlofshús í eigu annarra stéttarfélaga víða um land. Slík skipti opna á nýja og áhugaverða möguleika fyrir félagsmenn Þingiðnar og Framsýnar, þannig fengju þér aðgengi að orlofshúsum s.s. á Vestfjörðum, Vesturlandi og á Suðurlandinu í staðin fyrir orlofsíbúðirnar á Húsavík. Þá geta íbúðirnar einnig gagnast félagsmönnum sem búa utan Húsavíkur og aðstandendum þeirra þurfi þeir að dvelja á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga um tíma vegna veikinda.
Söguleg stund
Um er að ræða sögulega stund. Víða um land eiga stéttarfélög og starfsmannafélög orlofsíbúðir í þéttbýli s.s. á Akureyri. Fram að þessu hefur það ekki þekkst að slíkar íbúðir væru í boði á Húsavík. Með kaupum Framsýnar og Þingiðnar á tveimur orlofsíbúðum verður þar breyting á hvað félagsmenn þessara félaga varðar.
Framkvæmdir ganga vel og áætlað að afhenda íbúðirnar í byrjun ágúst.