Mikil umferð um Akureyrarflugvöll s.l. daga
25. apríl, 2024 - 18:04
Gunnar Níelsson - gunnar@vikubladid.is
Mikil umferð hefur verið um Akureyrarflugvöll síðustu daga, áætlunarflug, sjúkraflug, einkaþotur og töluverð þyrluumferð.
Í gærmorgun var beint flug frá Akureyri til Prag á vegum ferðaskrifstofunnar Aventura Nú í morgun fóru tvær vélar frá Akureyri til Prag, en þær voru á vegum Kompaní ferða.
Í dag hafa á sjötta hundrað farþega farið um flugstöðina.
Frá þessu segir á Facebooksíðu Akureyrarflugvallar
Nýjast
-
Bóngóður sjálfboðaliði heiðraður
- 09.05
Gunnar Frímannsson sjálfboðaliði Eyjafjarðardeildar fékk heiðursviðurkenningu sjálfboðaliða á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi fyrr í þessum mánuði. „Gunnar er jákvæður, traustur og afar bóngóður sjálfboðaliði,“ segir í umsögn um hann. -
Bjarmahlíð, þjónustumiðstöð hefur verið starfrækt í 5 ár
- 09.05
„Bjarmahlíð er rekin með styrkjum en óskastaðan er sú að komast á fjárlög en þannig mætti nýta tíma sem fer í að eltast við peninga í reksturinn til að auka þjónustuna enn frekar,“ segir Kristín Snorradóttir teymisstjóri hjá Bjarmahlíð, þolendamiðstöð á Akureyri. Fimm ár eru um þessar mundir frá því starfsemin hófst og var tímamótanna minnst með afmælishófi á Múlabergi í gær, miðvikudag. -
Borgarhólsskóli fór með sigur af hólmi í Fiðringi
- 09.05
Fiðringur á Norðurlandi var haldinn í Hofi þriðja sinn í gærkvöldi, 8. maí. Tíu skólar af Norðurlandi tóku þátt í ár og sýndu afrakstur vinnu sinnar -
„Sjávarútvegurinn er á undan stjórnvöldum í innleiðingu umhverfisvænnar tækni“
- 08.05
Hákon Þröstur Guðmundsson útgerðarstjóri Samherja var endurkjörinn í stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi ( SFS) á ársfundi samtakanna sem haldinn var 3. mai s.l. Hákon Þröstur þekkir vel til starfsemi SFS, var í stjórn 2019 – 2020 og samfellt frá 2022. Hann er menntaður skipstjórnarmaður og var í liðlega tvo áratugi skipstjóri á skipum Samherja, síðustu sautján árin hefur hann hins vegar starfað á útgerðarsviði félagsins. -
Þjónustunefnd AA leitar að framtíðarhúsnæði
- 08.05
Brýnt er að ráðast í gagngerar endurbætur á húsinu að Strandgötu 21 þar sem AA-samtökin á Akureyri hafa haft aðstöðu sína um langt árabil. -
Hitaveitur þarfnast athygli
- 08.05
Norðurorka rekur hitaveitu í Ólafsfirði og Reykjaveitu í Fnjóskadal auk hitaveitu á Akureyri og nágrannabyggðum. Þær veitur þarfnast athygli að því er fram kom í máli Eyþórs Björnsson forstjóra Norðurorku á aðalfundi félagsins. -
Hængsmenn afhentu bíl og héldu Hængsmót
- 08.05
Lionsklúbburinn Hængur á Akureyri hélt um liðna helgi árlegt Hængsmót fyrir fatlaða í 41. Skipti. Mótið fór fram í Íþróttahöllinni og í ár var keppt í boccia en mótið var auk þess Íslandsmót í greininni. -
Sýning ársins 2024 opnuð á Sigurhæðum
- 08.05
Á mæðradaginn, sunnudaginn 12. maí klukkan 13 opnar Sýning ársins 2024 í Menningarhúsi í Sigurhæðum á Akureyri. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, flytur ávarp á opnuninni. Húsið verður opið til klukkan 17 þennan sunnudag og það verður líka hægt að líta inn á vinnustofur listafólks, hönnuða og hugsuða á annarri hæð Sigurhæða. -
Vátryggingafélag Íslands (Skagi) kaupir Íslensk verðbréf
- 07.05
Vátryggingafélag Íslands hf. (Skagi) hefur undirritað kaupsamning við hluthafa Íslenskra verðbréfa hf. (ÍV) um kaup Skaga á 97,07% hlutafjár í félaginu. Horft er til þess að í kjölfarið verði farið í kaup hlutafjár annarra hluthafa þannig að Skagi verði einn eigandi alls hlutafjár í Íslenskum verðbréfum. Kaupverð 97,07% hlutafjár í Íslenskum verðbréfum er 1.598 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að kaupverðið verði greitt með reiðufé, en Skagi hefur val um að greiða allt að fjórðungi kaupverðsins með afhendingu nýs hlutafjár í Skaga. Fyrirtækjaráðgjöf og sérhæfðar fjárfestingar eru undanskilin í kaupunum. Jóhann M. Ólafsson, forstjóri ÍV, hefur stigið til hliðar og Jón Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri ÍV sjóða, hefur tekið tímabundið við sem forstjóri félagsins.
Athugasemdir