27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Meirihlutaviðræður á Akureyri á viðkvæmu stigi
Fréttablaðið greindi frá því fyrr í dag að meirihlutaviðræður á Akureyri milli L-listans, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins séu að sigla í strand.
Halla Björk Reynisdóttir, bæjarfulltrúi L-listans, vildi ekki segja annað en að viðræðurnar væru á viðkvæmu stigi.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gæti svo farið að meirihluti verði myndaður án aðkomu L-listans sem þó vann sigur í kosningunum og fékk flesta menn kjörna í bæjarstjórn, þrjá alls.
Þau rök hafa samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verið nefnd fyrir því að ekki gangi saman nú að stjórnartíð L-listans sé orðin of löng og tímabært sé að gefa flokknum frí.