Eldri fréttir
Sumarferð Félags fyrrverandi alþingismanna um Snæfellsnes

Árleg sumarferð Félags fyrrverandi alþingismanna var farin um um Snæfellsnes 24. júlí sl. Félagið var stofnað 1986 og er tilgangur þess fyrst og fremst að vera vettvangur fyrrverandi alþingismanna til að rifja upp gömul kynni og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Má segja að þau samskipti öll séu mun vinsamlegri en sú mynd sem gjarnan birtist af Alþingi í fjölmiðlum. Aðalsamkomur félagsins eru árlegur aðalfundur, árshátíð og svo sumarferðir. Ánægjulegt er að eftirlifandi makar fyrrverandi alþingismanna koma líka til að gleðjast með á árshátíðum og í hinum vinsælu sumarferðum. Félagið hefur einnig samband við systurfélög á Norðurlöndum og skiptist á heimsóknum við þau.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Starfsfólk í framhaldsskólum í nóvember 2009

Tæplega 2.600 manns starfa í framhaldsskólum eins og á síðasta skólaári
Haustið 2009 voru 2.582 starfsmenn í framhaldsskólum landsins í 2.564 stöðugildum. Þar af voru 1.911 starfsmenn við kennslu í 1.980 stöðugildum. Breytingar á fjölda starfsmanna í framhaldsskólum milli ára eru óverulegar. Starfsmönnum hefur fjölgað um einn frá fyrra ári en starfsmenn sem sinna kennslu eru jafn margir og fyrir ári síðan. Stöðugildum í framhaldskólum landsins hefur fjölgað um eitt á milli ára sé miðað við alla starfsmenn en fækkað um sjö þegar einungis er miðað við þá starfsmenn sem koma að kennslu.

Yfir 82% kennara í framhaldsskólum hafa kennsluréttindi, ekki fleiri síðasta áratug
Alls höfðu 82,2% starfsmanna við kennslu í nóvember 2009 kennsluréttindi og hefur fjölgað úr 78,0% árið áður.

Lesa meira...

 

Hættur eftir 28 ára dygga þjónustu

Um mánaðamótin apríl-maí lét Pétur Guðráð af störfum sem sjúkraflutningamaður eftir 28 ára dygga þjónustu við Grudarfjörð og nágrenni. Fannst honum nóg komið eftir allan þennan tíma og góður tími til að yngja upp í starfsliðinu og losna undan þeirri miklu kvöð og bindingu sem starfinu fylgir og snúa sér að fjölskyldunni og öðrum hugðarefnum. Við starfi hans hefur tekið Tómas Freyr Kristjánsson.

Guðráð þakkar sveitunum sínum og starfsfólki Heilsugæslunnar fyrir gott og farsælt samstarf með ósk um áframhaldandi velgengni á öllum sviðum.

 

Vikublaðið er komið á netið

Nýtt tölublað vikublaðsins er nú komið á netið og er það að finna með því að smella hér.
 
Borði
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 
<<  Júlí 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
      1  2  3
  4  5  6  7  8  910
11121314151617
18192021222324
25262728293031