UMFG vann Þótt 2 með öruggum sigri
Í gærkvöldi tóku Grundfirðingar á móti Þrótturum í 2 deild karla í blaki.
Töluverður munur var á liðunum í leiknum og eins og tölurnar segja náðu Þróttara aldrei að veita mótstöðu að ráði. Heimamenn voru ákveðnir að vinna leikinn og láta mistök sem voru gerð í fyrri leik liðana ekki trufla sig. Fyrsta hrina var frekar róleg, liðin skiptust á að skora en í stöðunni 5-5 fóru heimamenn að skríða framúr og unnu svo hrinuna nokkuð auðveldlega.
Í 2 hrinu náðu heimamenn strax góðir forustu og í undir lok hrinunnar var ungu strákunum
skipt inn á og þeim leyft að klára hrinuna, náðu Þróttarar að skora nokkur stig og laga stöðuna
en dugði ekki til. Í 2 hrinu voru áhorfendur og trommusveitin kominn af stað og var það
aðeins að trufla gestina. En um 90 til 100 manns voru á bekkjunum og er það klárt að stuðningur þeirra hefur mikið að segja fyrir leikinn.
Í 3 hrinu voru gestirnir aðeins sprækari og var staðan jöfn upp að 8-8 en þá sigu heimamenn
fram úr og með stuðningi áhorfenda kláruðu þeir leikinn.




