Eldri fréttir
reglugerð um öryggisbúnað barna

Til foreldra og forráðamanna.

Af gefnu tilefni viljum við minna á reglugerð um öryggisbúnað barna.

 

Í 71. gr. umferðarlaga segir m.a.:
Ökumaður skal sjá um að í stað öryggisbeltis, eða ásamt því, noti barn viðurkenndan
barnabílstól, beltispúða eða annan sérstakan öryggis- og verndarbúnað ætlaðan börnum lægri en 150 sm á hæð. Ef slíkur búnaður er ekki í bifreið skal nota öryggisbelti fyrir barnið

Barn sem er lægra en 150 sm á hæð má ekki vera farþegi í framsæti bifreiðar sem búin er
uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið.

Nánar...


Þessi vefur er prófaður og vottaður
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Erlendar fréttir
Borði

Northern Wave stuttmyndahátíðin haldin um helgina

Um næstu helgi má búast við að bæjarmynd Grundarfjarðar taki á sig öðruvísi mynd þegar til fjarðarins fagra skunda atvinnu- og áhugakvikmyndagerðarmenn og konur og deila hugðarefnum sínum meðal okkar almúgans. Eins og auglýst er hér í blaðinu er blásið til þriðju alþjóðlegu stuttmyndahátíðarinnar hér í Grundarfirði og má búast við að helgin verði hin áhugaverðasta. Dögg Mósesdóttir, grundfirks kvikmyndagerðarkona á heiður og höfuð í skipulagningu hátíðarinnar í ár eins og fyrri ár og eins og sagt er á vefsíðu hátíðarinnar berst hróður hennar víða og má búast við að margt sé forvitnilegt að sjá og upplifa um næstu helgi.  Eins og áður sagði er þetta í þriðja sinn sem hátíðin er haldin í Grundarfirði og má búast við að bæinn heimsæki fjöldi áhugaverðra gesta sem hafa frá mörgu og merkilegu að segja og deila með okkur bæjarbúum. Í fyrsta skiptið í sögunni er svo á laugardagskvöldið haldin sjávarréttasúpukeppni meðal íbúa bæjarins og eru gestir og gangandi smakkarar og dómnefnd.  Það er um að gera að skoða vel dagskrána og fjölmenna á þessa glæsilegu hátíð sem hefur sett sinn brag á vetrarmánuðina við Grundarfjörð sl ár.  hj
 
Facebook MySpace Twitter Digg Delicious Stumbleupon Google Bookmarks RSS Feed 

Vikublaðið er í

sumarfríi til

10. ágúst 2010

Hafið gott sumar!

Ritstjóri

<<  Ágúst 2010  >>
 S  M    M  F  F  L 
  1  2  3  4  5  6  7
  8  91011121314
15161718192021
22232425262728
293031